Jæja þá er einni
skemmtilegustu helgi sumarsins lokið…..ég er enn að ná mér eftir
hana…ekki vegna áfengisdrykkju eins og kannski flestir
landsmenn…nei heldur er ég að ná mér eftir að hafa fengi
hassberur á stöðum þar sem ég hef aldrei fengið hassberur á,
vissi ekki einu sinni að það væri hægt að fá hassberur á þessum
stöðum!
Ég skellti mér nefnilega,
í góðravina hóp, í ísklifur og hestaferð
J
Þetta var alveg
frábær ferð í alla staði, þrátt fyrir rigningu allann tímann, en ég
meina við búum á íslandi við hverju er að
búast….
Við brunuðum á
föstudeginum beint á skóga…ég gerði hraðamet í að pakka á met
tíma (held að ég taki mér lengri tíma næst í að undirbúa
svona ferð þar sem ég var með allt of lítinn fatnað, það var
allt alveg rennandiblautt:/ )
Svo tókum við því bara rólega í
rigningunni á föstudaginn…drukkum nokkra bjóra og fórum svo
bara að lúlla…svooo gott að sofa svona í grenjandi
rigningu
J

Um 12 leitið á
laugardeginum var svo haldið á Sólheimajökul….urðum að labba
í svona 30-40 mín á jöklinum til að komast á staðinn þar sem
við fórum svo að klifra
J
Ég verð að segja að
þetta var rosalega erfitt en maður koma sjálfum sér alveg gasalega
á óvart….hélt að ég gæti þetta sko ekki…ætlaði meira að segja að
sleppa því að fara erfiðari leiðina en nei ég lét mig hafa það og
komst alla leið!! Svo mikil hetja
Eftir ísklifrið skelltum
við okkur í sund, lágum í heitapottinum og höfðum það
kósí
J
Þegar við komum svo til
baka á tjaldstæðið byrjaði Jói meistarakokkur að grilla og
við hin opnuðum hvítvínsflöskuna og bjórinn og komum okkur
vel fyrir inni í tjaldi hjá Frikka sem minnti helst á
einbýlishús því það var svo stórt
J

Svo heppilega vildi til að
við hliðina á okkur var fjölskylda frá eyjum, maðurinn var
sjómaður og kom færandi hendi til okkar með glænýjan
grillaðan humar….mmmm ég fæ vatn í munninn bara að hugsa um
hann! Þau urður sko bestu vinir okkar eftir
þetta
J
Það sem eftir lifði
kvöldsins spilaði Frikki á gítarinn og við hin sungum eins og
við værum atvinnusöngvarar
hehe enda ekki þekkt fyrir neitt
annað en að vera með yndisfagrar
söngraddir


Á sunnudeginum sváfum
við bara út og tókum svo niður tjaldið í rólegheitunum.
Skelltum okkur svo í 3 tíma reiðtúr…..þegar ég var lítil
neitaði ég að fara á reiðnámskeið vegna þess að mér fannst
svo ógeðslega vond lygt….ég sé eftir því núna…þetta var
rosalega skemmtilegt….ég segi samt ekki að ég ætli að fara að
stunda hestamennsku…það yrði nú saga til næsta
bæjar



Eftir hestaferðina drifum
við okkur í bæjinn, heima beið mín lítil ammælisprinsessa,
hún Bínan mín átti nefnilega afmæli…alveg ótrúlegt að þessi
demantur hafi fæðst fyrir ári síðan…ji minn hvað tíminn líður
hratt
J

Um kvöldið var svo
partý smartý hjá Önnu Rúnu og Bo!
Þessi helgi var frábær í
alla staði……mjög eftirminnileg
J
Hvað segi þið, hvað
eigum við að gera næst
?
En kæru vinir á morgun er
ég á leið í paradís…ætla að fara með famelíunni minni að
sigla um hafið bláa….miðjarhafið með viðkomu í meðal annars
Can í Frakklandi..Rómarborg og Capri á Ítalíu…Mallorca og
Möltu
J
Ég lofa að hugsa til
ykkar
Ferðasaga paradísar
kemur seinna
Hafið það gott ég er
farin
Inga Rún
hafmeyja